Heiti aðgerða | Staðgreiðsluverð | Heildarverð | Verð á mán. m.v. 6 mánaða greiðslusdreifingu | Fyrsta og síðasta greiðsla m.v. 36 mán greiðsludreifingu |
---|---|---|---|---|
TransPRK | 468.000 kr | 488.000 kr | 84.585 kr | Fyrsta 27.350 kr | loka 14.646 kr |
LASIK | 550.000 kr | 570.000 kr | 98.730 kr | Fyrsta 31.879 kr | loka 17.040 kr |
Presbymax | 650.000 kr | 670.000 kr | 115.980 kr | Fyrsta 37.399 kr | loka 19.957 kr |
*Gjaldskrá gildir frá 13.11.2023
Aðgerð og öll eftirfylgni er innifalin í ofangreindum verðum. Undanskilin eru lyf og annað sem læknir ráðleggur til meðferðar.
Í sumum tilvikum þarf að setja silicontappa í táragangaop að lokinni aðgerð, sem hækkar kostnað aðgerðar um 23.800 kr., en markmið þeirra er að minnka þurrk í augum að lokinni aðgerð.
Vilt þú líf án gleraugna?
Forskoðun er fyrsta skrefið
Stéttarfélög taka þátt í kostnaði
Stéttarfélög taka þátt í sjónlagsaðgerðum hjá starfsfólki sínu í mörgum tilvikum og hvetjum við þig til að kanna þau mál hjá þínu félagi.
Jóhannes Kári augnlæknir metur í forskoðun fyrir laseraðgerð hvaða gerð laseraðgerðar hentar best í hverju tilviki.
Forskoðun fyrir aðgerð: kr. 10.500
GREIÐSLUKJÖR
1. Kortalán (Valitor) í allt að 36 mánuði (3,5% lántökugjald og breytilegir vextir)
2. Vaxtalausar greiðslur (Valitor) í 6 mánuði (3.5% lántökugjald)
Ofangreind dæmi miðast við útreikning 02.01.2023
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) taka þátt í undantekningartilfellum. Þá er um að ræða sjónlagsgalla þar sem 3 ljósbrotseiningar (díoptríur) eru á milli augna (t.d. -4 á öðru auga og -1 á hinu) og viðkomandi þarf einnig að sjá tvöfalt. Einnig tekur SÍ þátt ef sjónskekkja nemur 4 díoptríum eða meira og viðkomandi sér tvöfalt. Loks tekur SÍ þátt ef sjónlagsgallinn er afleiðing slyss eða aðgerðar, eða ef líkamleg fötlun kemur í veg fyrir að viðkomandi getur notað snertilinsur eða gleraugu. Þess má geta að SÍ greiða fyrir aðgerðir til að laga sjúkdóma í fremsta hluta hornhimnu með laser.
“Fellowship“ augnlæknis er skipulagt sérnám í a.m.k. 1 ár, þar sem augnlæknir fær frekari menntun og þjálfun í ákveðinni undirsérgrein augnlækninga. Sérgreinar augnlækninga eru eftirfarandi: Glákulækningar, barnaaugnlækningar, taugaaugnlækningar, sjónlagsaugnlækningar (þ.á.m. laseraugnlækningar), hornhimnulækningar, sjónhimnulækningar, ytra auga og augntóttarlækningar og meinafræði augna. Jóhannes Kári Kristinsson er „fellowship“- menntaður augnlæknir í hornhimnusjúkdómum og sjónlagslækningum (þ.á.m. laseraugnlækningum) frá einni af þekktustu augndeild heims, augndeild Duke háskólasjúkrahússins í Durham, Norður-Karólínu í Bandaríkjunum. Fellowship-menntun er víða talin einn mikilvægasti þáttur ákvörðunar um hvaða augnlækni skuli velja til að framkvæma LASIK-aðgerð.